Svanak.com
     HEIM • KAUPSKILMÁLAR • UPPLÝSINGAR • TENGILIÐUR • BÓKA HEIMAKYNNINGU • INNKAUPAVAGN      Sweden   Iceland


VERSLUN
Börn
  - Bolir
  - Buxur
  - Gallar
  - Kjólar
  - Peysur
  - Pils
  - Samfellur
  - Sokkar/Sokkabuxur
  - Ùtiföt
Fullorðnir
  - Bolir
  - Kjólar
  - Pils
Skór
  - Börn
  - Fullorðnir
Töskur
  - Litla Sæta
  - Stóra flotta
Fylgihlutir
  - Belti
        - Börn
        - Fullorðin
  - Handklæði
  - Hárbönd
  - Náttsloppar
  - Skartgripir
  - Smekkir
Tilboð


Þvottaleiðbeiningar
Stærðarkort
TENGILIÐUR

Svanhildur Kjartansdottir
Södra Näsbyvägen 6-3
27572 Lövestad, Sviþjóð

Gemsi: +46-737 593 209
info@svanak.com
LÁTA VIN VITA

Netfangið:


Kaup- og afhendingarskilmálar

Viðskiptavinur
Þú sem vilt versla hjá svanak.com verður að vera a.m.k. 18 ára og hafa afhendingarheimilisfang á Íslandi. Ef pakkar ekki eru sóttir og þar með endursendir til Svanak.com áskiljum við okkur réttinn að senda út reikning upp á 3.000 kr, óháð pöntunarupphæðinni, fyrir sendingar- og endursendingarkostnaði, pökkun og umsýslukostnaði. Ef með þarf, verður málið sent áfram til innheimtu.

Pöntunnarupphæð
Lágmarks pöntunnarupphæð er 2.500 kr. Sendingarkostnaður bætist við hverja pöntun ef annað er ekki uppgefið.

Greiðsla-Fyrirframgreiðsla
Greitt er inn á bankareikning: 0143-26-2763 (kennitala 030185-3079). Láttu alltaf fylgja með pöntunarnúmer og nafn við greiðslu. Vörurnar verða sendar þegar við höfum móttekið greiðsluna. Enginn aukakostnaður bætist við.

Skilaréttur og kvartanir
Ef þú þrátt fyrir allt skyldir fá gallaða eða ranga vöru átt þú að hafa samband við info@svanak.com innan 8 daga frá móttökudegi vörunnar. Við erum þakklát fyrir ábendingar um mögulega galla á vörunni. Við yfirförum endursendu vöruna. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að varan er gölluð borgum við umsvifalaust til baka upphæðina sem þú borgaðir eða sendum nýja vöru. Allt eftir þínum óskum. Endurgreiðslan verður sett inn á þann reikning sem þú gafst upp. Höfum við gert mistök, t.d. sent ranga stærð eða ranga vöru, borgum við ódýrasta endursendingarmátann. Skilarétturinn gildir fyrir framleiðslu- og efnisgalla samkvæmt íslenskum lögum en ekki fyrir venjulegt slit, rangar þvottaaðferðir eða aðrar rangar notkunaraðferðir. Við fylgjum reglum/leiðbeiningum Neytendasamtakanna. Endursendingar á vörum án okkar samþykkis eru ekki afgreiddar.

Skyldir þú af einhverjum ástæðum ekki vera ánægð/ur með vöruna hefur þú fjórtán (14) daga á þér til að skila henni. Varan verður að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Endursendingarkostnaður greiðist af viðskiptavini og endurgreiðist ej.

Ef þú við afhendingu vörunnar sérð að varan hefur skaddast í flutningum átt þú að láta vita á afhendingarstaðnum. Ef þeir taka ekki á sig ábyrgðina lætur þú okkur vita – mundu að geyma sködduðu umbúðirnar.

Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaðurinn er 1.190 kr.

Sendingarmáti
Ef pakkinnn er lítill, verður hann sendur beint heim í póstkassann. Annars þarf að sækja pakkann á næsta afhendingarstað eða pósthús. Við pöntun í gegnum heimasíðu okkar munt þú sjálfkrafa fá sundurliðaða kvittun senda í tölvupósti á það netfang sem þú gafst upp við pöntun. Endanlega kvittunin kemur síðan með póstinum.

Afhendingartími
Afhendingartími er venjulega þrjár vikur (skór fjórar vikur). Þar sem við venjulega erum ekki með fötin á lager þar sem allt er saumað fyrir þig, þurfum við þennan aðeins lengri afhendingartíma. Við ábyrgjumst ekki seinkun sem ekki hefur með Svanak.com að gera.

Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar viðskiptavina sem gefnar eru upp við skráningu eru einungis notaðar til að geta sent pantanir á rétt heimilisfang. Engar upplýsingar eru gefnar þriðja aðila án samþykkis viðskiptavinar.

Gjafir
Ef þú vilt gleðja einhvern með því að senda henni/honum gjöf frá okkur tökum við að okkur að pakka inn pöntuninni í gjafapappír. Kostnaður 200 kr.

Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum. Verðið sem gildir er það verð sem stendur á heimasíðunni þann dag sem pöntunin er gerð.

Áskilinn réttur
Svanak.com áskilur sér réttinn að afsala sér ábyrgð á prentavillum á heimasíðunni, og því ef vörur ekki lengur eru til á sölulista. Þar sem allt efni er keypt í smáupplögum getur svanak.com ekki ábyrgst að smáhlutir á t.d. smekkjum svo sem merki og pallíettur séu alltaf nákvæmlega eins og á myndunum. En þú verður að sjálfsögðu alltaf upplýst um breytingar. Við getum ekki ábyrgst að ljósmyndirnar sýni nákvæmlega útlit vörunnar. Viss litamismunur getur alltaf verið fyrir hendi háð tölvuskjá og upplausn hjá hverjum og einum. Einnig skiptir máli birtuskilyrði við ljósmyndun.

Annað
Sem viðskiptavinur verður þú að lesa í gegnum kaupskilmálana fyrir hverja pöntun. Því kaupskilmálarnir geta breyst án viðvörunnar.



INNKAUPAVAGN
Þú ert með (0) vörur í innkaupakörfunni þinni

Greiða
Leita
Framkvæma einfalda leit:
 
TOPPLISTINN

1. Partýtaska eða snyrtibudda
Meiri upplýsingar
    - 1290 ISK


2. Vorblóm
Meiri upplýsingar
    - 3900 ISK


3. Fleece húfa
Meiri upplýsingar
    - 790 ISK


TENGLAR
Hafðu samband ef áhugi er á skiptum á netslóð

lavikinga.eu silfurskart.blogcentral.is



   Svanak.com © 2010 | info@svanak.com | Design: 73:an Johansson